Í dag er stysti dagur ársins og á morgun tekur sól að hækka á lofti. Þegar hún er í þann mund að ná eins hátt og hún kemst teljum við að nýju í tónlistarhátíðina Við Djúpið. Strax á nýju ári kynnum við fyrsta hluta dagskrár hátíðarinnar sem fram fer dagana 17.–22. júní á Ísafirði.
Þegar skammdegið ræður ríkjum er ljúft að minna sig á að það birtir á ný. Það höfum við einmitt gert á Instagram undanfarnar vikur. Þar höfum við birt myndir sem teknar voru á Ísafirði á hátíðinni í sumar, þegar sólin tók sér aldrei frí og var varla horfin bakvið fjöllin þegar hún hóf að skína á þau handan fjarðarins.
Hátíðin hefur sett saman nýjan huggulegan lagalista á Spotify-tónlistarveitunni sem ber heitið Winter Music. Listinn passar vel við myrkrið og kuldann næstu daga; undir teppi heima eða þegar þarf einbeitingu og innblástur við vinnuna. Tónlistin kemur úr ýmsum áttum en ef vel er að gáð eru margar skemmtilegar skírskotanir til hátíðarinnar og Ísafjarðar.
Við hlökkum til að deila með ykkur dagskrá komandi hátíðar. Þangað til óskum við ykkur öllum gleðilegra jóla og þökkum samfylgdina á líðandi ári.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
Fylgið hátíðinni á Instagram:
Meira af Spotify:
Á upphafstónleikum hátíðarinnar síðasta sumar léku Catherine Gregory og David Kaplan fjölbreytta dagskrá fyrir flautu og píanó. Tvö verkanna á efnisskránni hafa þau nú hljóðritað og gefi út á glæsilegum hljómdiski sem er aðgengilegur á helstu streymisveitum. Verkin eru Five Andean Improvisations eftir Gabriela Lena Frank og Sónata fyrir flautu og píanó í D-dúr, op. 94 eftir Sergej Prokofiev. Þau fara bæði vel með hækkandi sól.