Veturinn er senn á enda og það birtir sífellt meira. Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði þegar sól er hæst á lofti, dagana 17.–22. júní. Góð leið til að fylgjast með tilkynningum og dagskrá hátíðarinnar er að fylgja okkur á Facebook.
Masterclass í söng – Herdís Anna og Alexander
Ísfirðingurinn Herdís Anna Jónasdóttir kemur í sumar fram á tónlistarhátíðinni Við Djúpið í fyrsta sinn. Hún leiðir einnig masterklass í söng fyrir lengra komna söngnemendur ásamt rússnesk-þýska píanóleikaranum Alexander Vorontsov. Þau hafa áður unnið saman en Vonotsov og Herdís komu fram á tónlistarhátíðinni Sea Sound Festival á eyjunni Norderney.
Enn eru nokkur pláss laus. Nemendur hátíðarinnar njóta þess að verja tíma saman á Ísafirði meðan á hátíðinni stendur, sækja tónleika og námskeið.
Herdís hefur komið víða við síðan hún lauk námi við Tónlistarskóla Ísafjarðar í upphafi aldarinnar. Eftir nám í Listaháskóla Íslands hélt hún til Berlínar í framhaldsnám og hefur síðan starfað við óperuhús í Þýskalandi og Sviss auk Reykjavíkur og komið fram á fjölmörgum tónleikum til dæmis hér heima, í Evrópu en líka eins langt í burtu og hægt er að hugsa sér: í Ástralíu.
Alexander Vorontsov er hæfileikaríkur píanisti sem hefur hlotið góða dóma fyrir einleik jafnt sem kammertónlist. Hann naut handleiðslu framúrskarandi píanóleikara og miðlar reynslu sinni og þekkingu áfram af innsæi og örlæti.
Brugðist við bráðatilfellum
Þriðjudagskvöldið 18. júní kl. 20 fara fram spennandi tónleikar í Hömrum. Þar kemur fram hefðbundinn strengjakvartett en efnisskráin er óráðin og hvernig hún verður til er harla óvenjulegt.
Strengjakvartettinn bregst við neyðartilfellum af öllu tagi. Þinn eigin Bráðakonsert býður áheyrandanum að fá bót meina sinna, því hljóðfæraleikararnir bregðast við bráðatilfellum tónleikagesta með klassískri innspýtingu við hæfi.
Tónleikagestum býðst, nafnlaust, að skrásetja bráðatilfelli úr lífi þeirra og kvartettinn finnur klassíska tónlist við hæfi.
Kvartettinn skipa Moritz Ter-Nedden og Johanna Ruppert á fiðlur, Yannick Hettich á víólu og Michael Schmitz á selló. Þau koma frá Þýskalandi.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
Lagalisti úr smiðju hátíðarinnar kom út á Spotify-tónlistarveitunni í kringum vorjafndægur enda tileinkaður upphafi vorsins og færir birtu að skrifborðinu og keyrir upp helgarstemmingu. Þar er tónlist sem tengist hátíðinni og Ísafirði; listamenn sem hafa komið fram heyrast leika og tónlist tónskálda sem eru væntanleg sömuleiðis.