Við kynnum með stolti dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið 2025. Hátíðin spannar fimm daga, býður upp á vel á annan tug tónleika, myndlistarsýningu og spennandi hliðardagskrá sem við kynnum fljótlega.
Þriðjudagur, 17. júní
Líkt og undanfarin ár er blásið í hátíðarlúðra á Ísafirði þegar þjóðin fagnar lýðveldisafmælinu. Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið er samofin bæjarhátíðarhöldunum; hefst á opnun myndlistarsýningar, heldur áfram á huggulegum útitónleikum í Blómagarðinum og lýkur á opnunarhátíð í Hömrum.
Gallerí Úthverfa, Aðalstræti kl. 16.
Tónlistarhátíðin Við Djúpið og Gallerí Úthverfa taka höndum saman og opna sýningu tveggja áberandi finnskra myndlistarmanna sem eiga Íslandsáhuga sameiginlegan. Karoliina Hellberg og Josefina Nelimarkka sóttu Við Djúpið í fyrra og deila reynslu sinni á sýningunni sem opnar kl. 16 á þjóðhátíðardaginn.
Blómagarðurinn á Austuvelli kl. 17.
Líkt og undanfarin ár hefst hátíðin á pikknikktónleikum á þjóðhátíðardeginum. Ísfirska söngvatríóið Hljómórar kemur fram og flytur fjölbreytta dagskrá. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en þeir eru í sérstakri samvinnu við Ísafjarðarbæ og 17. júní-hátíðarhöldin. Tónleikagestir eru hvattir til að taka með sér teppi að sitja á og jafnvel smá nesti.
Hamrar, kl. 20.
Finnski píanóleikarinn Helga Karen kemur fram á opnunarhátíð í Hömrum. Hún flytur tónlist úr ýmsum áttum frá 20. öldinni; finnska, bandaríska, þýska og meira að segja ísfirska en Hjálmar Helgi Ragnarsson á lítið verk á efnisskránni ásamt Morton Feldman, Ulja Pulkis og Stockhausen.
Miðvikudagur, 18. júní
Á öðrum degi hátíðarinnar koma fram tveir kammerhópar frá Bandaríkjunum. Annar er að stíga sín fyrstu skref á hinu stóra tónleikasviði, hinn er öllu reyndari og hefur sótt hátíðina þrisvar sinnum, í ólíkum myndum.
Edinborgarhúsið, kl. 12:15
Á fyrstu hádegistónleikum sumarsins kemur fram ameríska píanótríóið Antigone sem hátíðargestir kynntust sumarið 2024. Á stuttum tónleikum bjóða þau upp á nokkuð íburðarmikla dagskrá sem samanstendur af tveimur verkum. Annarsvegar píanótríó eftir Kaija Saariaho og hinsvegar tríó eftir bandaríska tónskáldið Gabriela Lena Frank.
Hamrar, kl. 20.
Kammerhópurinn Decoda hefur verið viðloðandi tónlistarhátíðina síðan árið 2011 og mætt til leiks í mismunandi myndum. Nú sækir hátíðina heim kvartett skipaður strengjum og klarinetti. Á tónleikum í Hömrum hlómar tónlist tveggja meistara, þeirra Mozarts og Messiean. Frábær kammertónlist í flutningi tónlistarfólks sem elskar að spila saman.
Fimmtudagur, 19. júní.
Dagurinn er tileinkaður finnskri tónlist en við dagskrárgerð hátíðarinnar í ár hefur verið litið sérstaklega til Finnlands. Í hádeginu kynnumst við þjóðarhljóðfæri vina okkar Finna en um kvöldið fjölbreyttri finnskri tónlist í flutningi margra listamanna hátíðarinnar.
Edinborg, kl. 12:15
Finnski arkitektinn og tónlistarmaðurinn Tuomas Toivonen flytur fjölbreytta dagskrá þar sem Kantele, þjóðarhljóðfæri Finna, er í forgrunni. Hann kynnir bæði gömul kvæði og lög en einnig eigin verk þar sem hann byggir á aldagamalli sagnahefð en færir til nútímans.
Hamrar, kl. 20.
Listamenn hátíðarinnar með Helgu Karen og Tuomas Toivonen í broddi fylkingar flytja fjölbreytta tónlist frá Finnlandi. Á efnisskránni eru meðal annars strengjatríó eftir Jean Sibelius en hann á einnig sönglög á dagskránni, píanótríó og sellóverk eftir Kaija Saariaho, verk fyrir bassaklarinett og selló eftir Kimmo Hakkola auk þess sem kantele eignast nýja vini. Fram koma Decoda, Antigone, Liam Battle, Hildigunnur Einarsdóttir, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Tuomas Tuoivonen og Helga Karen.
Föstudagur, 20. júní
Hátíðin farin að styttast í annan endann og að ná hápunkti. Þrennir tónleikar á dagskrá, allir mjög ólíkir að formi, gerð og efnisvali. Klarinett í hádeginu, Kurt Weill á stórtónleikum í Hömrum og svo söngvaskáld á Dokkunni síðkvölds.
Edinborg kl. 12:15
Írski klarinettleikarinn Carol McGonnell býður upp á stutta einleikstónleika þar sem uppáhaldshljóðfæri margra er í forgrunni. Tónleikarnir eru tilvalinn upptaktur að sólstöðuhelginni.
Hamrar kl. 20.
Sannkallaðir stórtónleikar þar sem vin- og söngkonurnar Hildigunnur Einarsdóttir og Sigríður Thorlacius bjóða upp á veislu sönglaga þýska tónskáldsins Kurts Weills ásamt tíu manna hljómsveit listamanna hátíðarinnar. Lögin eru útsett fyrir tilefnið af Þórði Magnússyni og spanna feril Weills en í ár eru liðin 125 ár frá fæðingu hans.
Dokkan kl. 22:15
Síðkvöldstónleikar á Dokkunni, brugghúsi bæjarins, þar sem fjögur vinsæl söngvaskáld, Sorcha Richardson, Bridie Monds-Watson (SOAK), Ellis Ludwig-Leone (San Fermin) og heimamaðurinn Mugison flytja nýja tónlist í félagi við hljóðfæraleikara úr kammerhópnum Decoda frá Bandaríkjunum.
Laugardagur, 21. júní – sumarsólstöður
Lokadagur hátíðarinnar er tekinn snemma. Hann hefst með nemendatónleikum í Hömrum. Því næst er komið að sumarjazzi í anda Jómfrúarinnar í Reykjavík – smurbrauð, frískandi drykkir og jazz. Hátíðinni lýkur svo með tónlistarveislu í Hömrum kl. 17.
Staðsetning kynnt síðar, kl. 13
Smurbrauðsveitingahúsið Jómfrúin hefur um árabil staðið fyrir sumarjazztónleikaröð á torginu fyrir aftan veitingastaðinn við Lækjargötu í Reykjavík. Tónleikaröðin hlaut í fyrra Íslensku tónlistarverðlaunin sem viðburður ársins. Jómfrúin fagnar í ár 30 ára afmæli og af því tilefni mætir hún vestur í Djúp með smurbrauð, remúlaði og jazz.
Hamrar, kl. 17.
Það er blásið til tónlistarveislu á lokahátíð Við Djúpið. Fram koma listamenn hátíðarinnar í fjölbreyttri dagskrá sem spannar breytt bil tónlistarögunnar. Tríó eftir Daníel Bjarnason, glænýtt stykki fyrir píanó eftir Ellis Ludwig-Leone og La Follia í útsetningu Michi Wiancko er meðal þess sem boðið er upp á.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
THE FESTIVAL PROGRAM
Við Djúpið Music Festival June 17th–21st 2025.
We are proud to present the program for Við Djúpið 2025! The festival spans five days, featuring over ten concerts, an art exhibition, and an exciting side program to be announced soon.
Tuesday, June 17
As in previous years, the Við Djúpið Music Festival kicks off in Ísafjörður as the nation celebrates Icelandic National Day. The festival program is closely intertwined with the town’s festivities, beginning with the opening of an art exhibition, continuing with a cozy outdoor concert in Blómagarðurinn, and concluding with the opening concert in Hamrar.
Outvert Art Space, Aðalstræti, at 16:00
The Við Djúpið Music Festival and Outvert Art Space join forces to open an exhibition featuring two prominent Finnish artists, Karoliina Hellberg and Josefina Nelimarkka. Both have a deep interest in Iceland and attended the festival last year. Their exhibition, reflecting on that experience, opens at 16:00 on National Day.
Blómagarðurinn at Austurvöllur at 17:00
The festival tradition of National Day picnic concerts continues, featuring the Ísafjörður-based vocal trio Hljómórar performing a diverse program. Admission is free, and the concert is a special collaboration with the town of Ísafjörður and National Day celebrations. Guests are encouraged to bring blankets and perhaps a small picnic.
Hamrar at 20:00
Finnish pianist Helga Karen performs at the festival’s opening concert in Hamrar, presenting a program of 20th-century music. The repertoire includes works by Finnish, American, German, and even local Ísafjörður composers. Among them is a piece by Hjálmar Helgi Ragnarsson alongside works by Morton Feldman, Uljas Pulkkis, and Stockhausen.
Wednesday, June 18
The second day of the festival features two chamber ensembles from the United States. One is an emerging group taking its first steps onto the major concert stage, while the other is a seasoned ensemble returning to the festival for the third time in different formations.
Edinborgarhúsið at 12:15
The first lunchtime concert of the summer features the American piano trio Antigone, familiar to festivalgoers from 2024. Their short yet rich program consists of two major works: a piano trio by Kaija Saariaho and another by American composer Gabriela Lena Frank.
Hamrar at 20:00
Decoda, a chamber ensemble closely associated with the festival since 2011, returns in a new formation featuring strings and clarinet. Their concert in Hamrar showcases works by two masters: Mozart and Messiaen. A superb evening of chamber music performed by musicians who share a deep love for playing together.
Thursday, June 19
This day is dedicated to Finnish music, as Finland has been a particular focus of this year’s festival programming. The lunchtime concert introduces Finland’s national instrument, the kantele, while the evening concert presents a diverse selection of Finnish music performed by many festival artists.
Edinborgarhúsið at 12:15
Finnish architect and musician Tuomas Toivonen presents a varied program featuring the kantele, Finland’s national instrument. His performance blends traditional ballads and melodies with original compositions inspired by ancient storytelling traditions, reimagined for the present day.
Hamrar at 20:00
Festival artists, led by Helga Karen and Tuomas Toivonen, perform an eclectic selection of Finnish music. The program includes a string trio by Jean Sibelius, his art songs, piano trio and cello works by Kaija Saariaho, a bass clarinet and cello piece by Kimmo Hakola, and an unexpected kantele collaboration. Performers include Decoda, Antigone, Liam Battle, Hildigunnur Einarsdóttir, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Tuomas Toivonen, and Helga Karen.
Friday, June 20
As the festival nears its peak, three diverse concerts are scheduled. The day features a clarinet recital, a grand Kurt Weill tribute in Hamrar, and an intimate singer-songwriter session at Dokkan late in the evening.
Edinborgarhúsið at 12:15
Irish clarinetist Carol McGonnell presents a short solo recital, celebrating one of the most beloved instruments in the classical repertoire. A perfect musical prelude to the summer solstice weekend.
Hamrar at 20:00
A spectacular concert featuring singers Hildigunnur Einarsdóttir and Sigríður Thorlacius, who present a vibrant program of Kurt Weill’s songs. Accompanied by a ten-piece festival ensemble, the performance highlights Weill’s musical legacy on the 125th anniversary of his birth. The arrangements for this special occasion are by Þórður Magnússon.
Dokkan at 22:15
A late-night concert at Dokkan, the town’s brewery, featuring four acclaimed singer-songwriters: Sorcha Richardson, Bridie Monds-Watson (SOAK), Ellis Ludwig-Leone (San Fermin), and Ísafjörður’s own Mugison. The artists will perform new songs alongside musicians from Decoda.
Saturday, June 21 – Summer Solstice
The festival’s final day starts early with student concerts in Hamrar, followed by a midday jazz session inspired by Reykjavík’s Jómfrúin tradition—smørrebrød, refreshing drinks, and live jazz. The grand finale concert in Hamrar closes the festival at 17:00.
(Location TBA) at 13:00
For years, the renowned Reykjavík restaurant Jómfrúin has hosted a summer jazz concert series in the city center. Last year, the series won the Icelandic Music Awards for Best Event. To celebrate its 30th anniversary, Jómfrúin brings its signature smørrebrød, remoulade, and jazz to Við Djúpið.
Hamrar at 17:00
The festival concludes with a musical feast at the closing concert of Við Djúpið. Festival artists perform a diverse program spanning various musical styles, featuring a trio by Daníel Bjarnason, a brand-new piano work by Ellis Ludwig-Leone, and a special arrangement of La Follia by Michi Wiancko.
Looking forward to seeing you,
Við Djúpið Music Festival