Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2024 er nú óðum að taka á sig mynd og við erum tilbúin að að kynna dagskrána. Hátíðin fer fram dagana 17.–22. júní í sumar, einmitt þegar sól er hæst á lofti og Vestfirðir eru að komast í sumargír. Fyrst kynnum við endurfundi til leiks.
Ný íslensk tónlist fyrir strengi
Föstudagskvöldið 21. júní verður tileinkað nýrri tónlist fyrir strengi. Kvartett úr Cauda Collective treður upp með fimm verk; þrjú glæný strengjatríó og tvo strengjakvartetta. Öll verkin eru eftir meðlimi tónskáldahópsins Errata.
Halldór Smárason, Haukur Þór Harðarson, Petter Ekman fá frumflutt ný tró fyrir strengi, samin fyrir tilefnið og Bára Gísladóttir og Finnur Karlsson bera fram nýlega kvartetta á tónleikunum.
Þess má geta að Halldór, Petter og Finnur eiga það sameiginlegt að hafa sótt tónskáldasmiðju hátíðarinnar, „ný tónsláld“, þegar þeir voru að stíga sín fyrstu skref sem tónskáld eftir útskrift úr námi. Það er því sérstaklega ánægjulegt að fá verk þeirra flutt á hátíðinni nú.
Um vetrarsólstöður á nýliðnu ári kynnti hátíðin nýjan lagalista sem sem ber heitið Winter Music. Listinn passar vel við myrkrið og kuldann, undir teppi heima eða þegar þarf einbeitingu og innblástur við vinnuna. Tónlistin kemur úr ýmsum áttum en ef vel er að gáð eru margar skemmtilegar skírskotanir til hátíðarinnar og Ísafjarðar.
Við hlökkum til að halda áfram að kynna fyrir ykkur dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið á næstu vikum.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
Meira af Spotify:
Á stuttum en eftirminnilegum hádegistónleikum síðast liðið sumar lék Sæunn Þorsteinsdóttir einn kafla úr hverri af sex sellósvítum Johanns Sebastians Bachs en um þær mundir kom út hljómplata með leik Sæunnar á öllum svítunum. Plötuna er að sjálfsögðu að finna á Spotify. Sæunn verður aftur á ferð á hátíðinni í sumar en þá með allt öðru vísi tónlist. Meira um það síðar.