BRÆÐURNIR FRACH
THE FRACH BROTHERS
Í dag er sólardagurinn á Ísafirði. Sólin gæti skinið á húsin í bænum í fyrsta sinn síðan í nóvember. Hún skín kannski ekki lengi hvern dag, en bæjarbúar finna fyrir birtunni. Að hugsa sér að það verði svo endalaus dagsbirta þegar tónlistarhátíðin fer fram á Ísafirði dagana 17. til 21. júní 2026 undir heitinu Í nýlendunni.
Við höldum áfram að kynna dagskrá hátíðarinnar og þá listamenn sem koma fram en í haust og fyrir jól sendum við þessi bréf með upplýsingum um danska og ísfirska listamenn:
Yfirskrift hátíðarinnar „Í nýlendunni“ vísar til Ísafjarðar sem samfélags sem hefur mótast í gegnum aldirnar af fólki og menningu sem bæði hefur sprottið upp í firðinum en ekki síður borist yfir hafið með ólíkum hópum íbúa.
MAKSYMILIAN, MIKOLAJ, NIKODEM OG VINIR
Það vissi enginn þá hve djúp spor unga parið Janusz og Iwona myndi marka í tónlistar- og bæjarlífi Ísafjarðar þegar þau komu um miðjan 10. áratug síðustu aldar frá Póllandi og settust að í bænum. Saga þeirra er lík sögu margra annarra sem hingað koma; ætla að vera í eitt ár, bæta svo við öðru og allt í einu eru þau orðin 30.
Synir þeirra þrír, allir fæddir og uppaldir á Ísafirði, hafa lagt tónlistina fyrir sig og eru ýmist að ljúka eða hafa lokið framhaldsnámi í heimaborginni Kraká. Þetta eru víóluleikarinn Maksymilian Haraldur, píanóleikarinn Mikołaj Ólafur og fiðluleikarinn Nikodem Julius.
Bræðurnir verða gestir tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið sumarið 2026 og koma fram á nokkrum tónleikum í dagskránni; þrír saman, einir eða hver með öðrum, og á sérstökum tónleikum sem þeir standa fyrir föstudagskvöldið 19. júní með tveimur vinum frá Kraká: fiðluleikaranum Piotr Tarcholik, konsertmeistara Pólsku útvarpshljómsveitarinnar, og sellóleikaranum Bartosz Koziak, margverðlaunuðum tónlistarmanni sem hlotið hefur fyrstu verðlaun í fjölmörgum alþjóðlegum tónlistarkeppnum, þar á meðal Lutosławski-sellókeppninni í Varsjá, Prague Spring-keppninni og Isang Yun-keppninni í Suður-Kóreu. Meðal verka á efnisskrá tónleikanna er stórbrotinn píanókvintett Shostakovitsj í g-moll og Kvintett ísfirska tónskáldsins Jóns Ásgeirssonar.
Miðasala á staka tónleika er ekki hafin en sala hátíðarpassa er í fullum gangi.
TÓNLIST FYRIR VETURINN
Á vetrarsólstöðum kom út ný útgáfa lagalista hátíðarinnar sem tileinkuður er vetrinum. Hann hefur að geyma tónlist sem með einhverjum hætti tengist hátíðinni og Ísafirði. Flytjendur eru tilvonandi og fyrrverandi gestir Við Djúpið og þar er að finna tónlist að vestan og tónlist tónskálda sem sótt hafa hátíðina heim. Lagalistinn passar fullkomlega með vetrarkyrrðinni heima við eða á ferðalagi en getur líka hentað vel við vinnuna.
THE FRACH BROTHERS
The sun might return today, having not shone on the houses of the town since November. It may not stay long each day, but the people of Ísafjörður can feel the light. Just imagine the endless daylight when the music festival takes place in Ísafjörður from 17–21 June 2026, under the theme In the Settlement.
We continue to introduce the festival program and the artists who will be performing. Earlier this autumn and just before Christmas, we sent out newsletters with information about Danish and Ísafjordian artists:
The festival theme In the Settlement refers to Ísafjörður as a community shaped over centuries by people and culture—by what has grown from within the fjord itself, but also by what has arrived across the sea with successive waves of inhabitants.
MAKSYMILIAN, MIKOLAJ, NIKODEM AND FRIENDS
At the time, no one could have known how deep an imprint the young couple Janusz and Iwona would leave on the musical and civic life of Ísafjörður when they arrived from Poland in the mid-1990s and settled in the town. Their story resembles that of many others who come here: planning to stay for one year, then adding another — and suddenly thirty years have passed.
Their three sons, all born and raised in Ísafjörður, have each chosen music as their path and are either completing or have completed advanced studies in their family’s hometown of Kraków. They are violist Maksymilian Haraldur, pianist Mikołaj Ólafur, and violinist Nikodem Julius.

The brothers will be guests of the Við Djúpið Music Festival in the summer of 2026 and will appear in several concerts throughout the programme — performing together, individually, and in pairs. They will present a special concert on Friday evening, June 19, together with two friends from Kraków: violinist Piotr Tarcholik, concertmaster of the Polish National Radio Symphony Orchestra, and cellist Bartosz Koziak, an award-winning musician whose career includes top prizes at major international competitions such as the Lutosławski, Prague Spring, and Isang Yun competitions.
Among the works on the programme are Shostakovich’s monumental Piano Quintet in G minor and Kvintett by the Ísafjörður composer Jón Ásgeirsson.
Ticket sales for individual concerts have not yet begun, but festival passes are currently available.
UPDATED WINTER MUSIC PLAYLIST
At Winter Solstice we published a fresh version of our Winter Music playlist, featuring music connected in various ways to the festival and to Ísafjörður. The artists include both upcoming and past guests of Við Djúpið, alongside music from the Westfjords and works by composers who have visited the festival.
The playlist is well suited to winter stillness—at home or while travelling—and works just as well as a companion to focused work.



