Í dag fagna Íslendingar 80 ára afmæli lýðveldisins. Hér á Ísafirði fara fram hefðbundin hátíðarhöld og hægt er að kynna sér dagskrána á vef Ísafjarðarbæjar. Á undanförnum árum hefur skapast sú hefð að tónlistarhátíðin Við Djúpið hefjist á þjóðhátíðardeginum og því er eins farið í ár. Það verða tvennir tónleikar á dagskrá í dag; pikknikk-tónleikar kl. 17 í blómagarðinum á Austurvelli og svo opnunartónleikar kl. 20 í Hömrum.
Neðar í fréttabréfinu finnur þú upplýsingar um hlaupahóp hátíðarinnar og jóga-tíma.
Miðasala á hátíðina fer fram á netinu og við inngang á tónleikastöðum.
Í dag, 17. júní
Fyrstu tónleikar hátíðarinnar eru huggulegir pikknikk-tónleikar í blómagarðinum síðdegis. Þar stíga á stokk Ísfirðingarnir Svava Rún Steingrímsdóttir, Skúli Mennski og Pétur Ernir Svavarsson. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Gestir eru hvattir til að taka teppi eða púða með og jafnvel nesti í körfu. Á staðnum er svo kaffi til sölu ásamt einhverju lítilræði.
👉 17:00: Pikknikk-tónleikar í blómagarðinum á Austurvelli (Facebook)
Í kvöld opnar hátíðin svo formlega á spennandi kammertónleikum þar sem meðlimir Orchester im Trappenhaus koma fram og leika verk eftir Claude Debussy, Philippe Gaubert, Paul Hindemith og fleiri.
👉 20:00: Opnunartónleikar í Hömrum (Facebook)
Hlaupahópur og jóga
Auk þess að bjóða gestum og þátttakendum í hátíðinni að auðga andann er öllum boðið að iðka líkama og sál með hreyfingu.
Hlaupahópur hátíðarinnar hleypur alla daga kl 8:15 frá Ísafjarðarkirkju. Best er að fylgjast með hópnum og skrá sig til leiks með hjálp Strava.
Klukkan 9, þriðjudag–föstudags, leiðir tónlistarkonan og lífskúnstnerinn Rúna Esradóttir jóga í gamla íþróttahúsinu við Austurvöll fyrir tónlistarfólk og þátttakendur á námskeiðum.
Hátíðarpassi bestu kaupin
Hver tónleikadagur hátíðarinnar er öðrum áhugaverðari og því lang best að tryggja sér hátíðarpassa á góðum kjörum og sökkva sér í veröld tónlistarinnar.
Sú nýbreytni verður tekin upp í ár að miðar á hádegistónleika verða seldir á 1.000 kr. en almennt tónleikaverð er 3.200 kr.
Ísafjörður í hátíðarskapi
Veðrið hefur leikið við okkur í aðdraganda hátíðarinnar og við hlökkum til komandi daga.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
Góð leið til að fylgjast með hátíðinni er að fylgja henni á Instagram:


