Góðan dag,
tónlistarhátíðin Við Djúpið heldur áfram eftir tvo vel heppnaða daga um helgina. Hádegistónleikaröðin hefst á eftir í Bryggjusal Edinborgarhússins og í kvöld er komið að söng og píanó í Hömrum.
Hádegistónleikar í Edinborg kl. 12:15
Í hádeginu í dag leikur David Kaplan tvö af öndvegisverkum píanóbókmenntanna, Fantasíu Mozarts í c-moll (K. 475) og Tunglskinssónötu Beethovens. Þriðja verkið á tónleikunum er Ballade eftir finnska tónskáldið Kaiju Saariaho sem lést fyrr í mánuðinum. Ballade er samið árið 2005, stutt en áhrifamikið verk þar sem tónskáldið lætur laglínu birtast út úr þéttum tónvefnaði og hverfa inn í hann aftur.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Gott aðgengi er að Bryggjusal Edinborgarhússins.
Edinborg Bistro er opið í hádeginu þá daga sem hádegistónleikar eru á dagskrá. Í boði er að kaupa sjávarréttasúpu og brauð á 1.950 kr. eða grænmetissúpu (vegan). Athugið að ekki er gert ráð fyrir að tónleikagestir matist á meðan á tónleikunum stendur.
Söngur og píanó í Edinborg kl. 20
Á þessum tónleikum eru norræn sönglög í öndvegi. Hér hljóma þekkt lög eftir Jórunni Viðar, Jón Leifs, Edvard Grieg og Jean Sibelius en við fáum einnig að heyra lög eftir annan flytjandann, bandaríska tónskáldið og píanóleikarann Evan Fein, samin við íslensk ljóð, og alveg nýtt verk eftir Halldór Smárason, Fjallkonuljóð, sem er samið við samnefnt ljóð Lindu Vilhjálmsdóttur frá árinu 2018.
Myndir frá helginni
Við Djúpið hófst með tvennum ólíkum tónleikum; í Blómagarðinum og síðar um Hömrum. Í gær voru svo fjölsóttir tónleikar í Hömrum þar sem hljómaði tónlist fyir fiðlu og selló og svo 5 selló.
Fylgið okkur á Instagram: @viddjupid