Eftir nokkurra ára bið er komið að því að tónlistarhátíðin Við Djúpið telur í á ný. Hátíðin fer fram á Ísafirði dagana 17. til 19. júní. Boðið er upp á sumarnámskeið fyrir tónlistarnemendur með masterclass-sniði og ferna glæsilega tónleika.
Þér berst þetta fréttabréf þar sem þú hefur skráð þig á póstlista hátíðarinnar nýlega eða sýnt henni áhuga á árum áður þegar hún var árlegur viðburður í íslensku tónlistarlífi. Ef þú kærir þig ekki um að fá fréttir af hátíðinni má auðveldlega skrá sig af póstlistanum hér neðst í bréfinu.
Tónleikadagskrá
Hátíðin býður upp á ferna fjölbreytta tónleika; eina útitónleika í Blómagarðinum á Austurvelli og þrenna hefðbundnari í Hömrum.
Föstudagur, 17. júní:
17:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum: Katla Vigdís og Salóme Katrín
20:00 Hátíðartónleikar: Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari í Hömrum
Laugardagur, 18. júní:
17:00 Píanóveisla: Erna Vala Arnardóttir píanóleikari í Hömrum
Sunnudagur, 19. júní
20:00 Lokahátíð: James Laing kontratenór í Hömrum ásamt Pétri Erni Svavarssyni
Námskeiðin
Að venju býður hátíðin lengra komnum nemendum upp á námskeið með masterclass-sniði. Námskeiðin fara fram í Tónlistarskóla Ísafjarðar. Í ár eru kennarar hátíðarinnar þau James Laing, söngkennari og Sæunn Þorsteinsdóttir, sellókennari.
Hafi almenningur áhuga á að heimsækja námskeiðin má hafa samband við Pétur Erni á peturernir@viddjupid.is.
Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2022 er haldin að frumkvæði Ísfirðinganna Péturs Ernis Svavarssonar og Greips Gíslasonar. Hún er haldin með stuðningi Tónlistarsjóðs og Ísafjarðarbæjar og Tónlistarfélags Ísafjarðar í samvinnu við Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Fyrirtæki á svæðinu styðja einnig við hátíðina. Þar á meðal eru Hótel Ísafjörður, Tjöruhúsið og fleiri. Öllum þeim eru færðar þakkir fyrir hjálpina.
Við Djúpið heldur úti lifandi síðu á Facebook. Þar má fylgjast með framvindu hátíðarinnar og viðburðum hennar.