Góðan dag,
tónlistarhátíðinni Við Djúpið lýkur í kvöld, á sumarsólstöðum, með lokahátíð. Þar kemur fram tríó; flauta, selló og píanó. Í hádeginu í dag eru á dagskrá 6 þættir úr sellósvítum Bachs.
Hádegistónleikar í Edinborg kl. 12:15
Um sumarsólstöður 2020, í miðjum kórónaveirufaraldri, hélt Sæunn Þorsteinsdóttir vestur á firði og efndi til tónleika í sex kirkjum þar sem hún lék allar sellósvítur Bachs, eina svítu í hverri kirkju. Guðshúsin fylltust af tónleikaþyrstum gestum sem margir fylgdu Sæunni kirkju úr kirkju, úr firði í fjörð, þar til síðasta svítan hljómaði við ysta haf rétt í þann mund sem sólin sleikti hafflötinn. Í framhaldi af þessu sólstöðuævintýri hljóðritaði Sæunn svíturnar og þær koma nú út á hljómdiski undir merkjum bandarísku útgáfunnar Sono Luminus. Á þessum hádegistónleikum – sem bera einnig upp á sumarsólstöður – er útgáfunni fagnað og Sæunn leikur einn þátt úr hverri svítu.
Aðgengi að Rögnvaldarsal Edinborgarhússins er gott og aðgangur að tónleikunum ókeypis og öllum heimill.
Edinborg Bistro er opið í hádeginu þá daga sem hádegistónleikar eru á dagskrá. Í boði er að kaupa sjávarréttasúpu og brauð á 1.950 kr. eða grænmetissúpu (vegan). Athugið að ekki er gert ráð fyrir að tónleikagestir matist á meðan á tónleikunum stendur.
Lokahátíð í Hömrum kl. 20
Á lokatónleikum hátíðarinnar leika þau David Kaplan, Catherine Gregory og Sæunn Þorsteinsdóttir spennandi efnisskrá. Bandaríska tónskáldið Ellis Ludwig-Leone sótti tónskáldasmiðju á Við Djúpið árið 2012, tók þá ástfóstri við Ísafjörð og hefur komið af og til síðan og unnið að verkefnum hér. Á tónleikunum heyrist eitt af hans nýjustu verkum og einnig hið óviðjafnanlega Vox Balaenae eftir George Crumb frá árinu 1971 sem innblásið er af söng hnúfubaksins. Upptaktinn á tónleikunum á svo Joseph Haydn með yndislegu tríói í D-dúr fyrir flautu, selló og píanó.
Nokkrar myndir frá hátíðinni
Fylgið okkur á Instagram: @viddjupid