Bandaríska tónskáldið Ellis Ludwig-Leone verður nokkuð áberandi á tónlistarhátíðinni Við Djúpið í sumar. Hæst bera tónleikar miðvikudaginn 19. júní þegar verk hans, False We Hope, verður flutt.
Tal eftir að raddböndin hafa verið fjarlægð
False We Hope er söngvasveigur eftir bandaríska tónskáldið Ellis Ludwig-Leone. Sönglögin, sem eru samin við ljóð eftir Karen Russell og Carey McHugh, urðu til í uppnáminu árið 2020. Í þeim eru trúin, fjölskyldan og leitin að tilgangi brotin til mergjar, til að varpa ljósi á þrá okkar eftir tengslum mitt í óreiðu tilverunnar.
Í fyrra kom út samnefnd hljómplata með sönglögunum þar sem Eliza Bagg syngur og tónskáldið leikur á hljóðgervil og píanó ásamt Attacca-strengjakvartettinum. Á plötunni er strengjakvartetti tónskáldsins Speech after the Removal of the Larynx (Tal eftir að raddböndin hafa verið fjarlægð) ofið saman við söngvasveiginn.
Á tónleikum í Hömrum 19. júní kl 20 verður sami háttur hafður ár. Söngvasveigurinn og strengjakvarettinn hljóma í heild sinni í flutningi tónskáldsins, Eliza Bagg og strengjakvartetts úr þýsku hljómsveitinni Orchester im Treppenhaus.
Tónleikarnir eru styrktir af Goethe Institut.
Masterclass í kammartónlist
Enn eru laus pláss á kammertónlistarnámskeið hátíðarinnar 2024 fyrir strengjaleikara, blásara og píanista í litlum hópum. Kennarar hátíðarinnar, sem koma meðal annars úr kammersveitinni Orchester im Treppenhaus frá Þýskalandi, leika með nemendum í kammerhópum.
Christine Köhler, flautuleikari og Moritz Ter-Nedden, fiðlukeikari, leiða fjögurra daga masterclass í kammertónlist á Við Djúpið ásamt því að bjóða flautu- og fiðlunemendum á masterclass á sín hljóðfæri. Athygli er vakin á að nemendur þurfa ekki skrá sig til leiks í fyrirfram samsettum kammerhópum heldur er öllum nemendum skipað í hóp á námskeiðinu.
Við hlökkum til að halda áfram að kynna fyrir ykkur dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið á næstu vikum.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
Nýr lagalisti úr smiðju hátíðarinnar kom út á Spotify-tónlistarveitunni í kringum vorjafndægur enda tileinkaður upphafi vorsins og færir birtu að skrifborðinu og keyrir upp helgarstemmingu.