Tónlistarhátíðin Við Djúpið stendur yfir á Ísafirði dagana 17. til 21. júní. Á dagskrá eru 5 hátíðartónleikar í Hömrum, öll kvöld kl. 20. Til viðbótar eru aðrir tónleikar en hátíðin hefst í Blómagarðinum, Austurvelli, kl. 17 á þjóðhátíðardaginn með pikknikk-tónleikum.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag verða hádegistónleikar í Bryggjusal Edinborgarhússins og nemendur á námskeiðum hátíðarinnar koma fram á nemendatónleikum.
Hægt er að kaupa miða á einstaka tónleika en hagstæðast er að kaupa hátíðarpassa. Meira um miðasöluna hér að neðan.
Dagskrá hátíðarinnar alltaf má kynna sér á heimasíðu hennar.
Laugardagur, 17. júní
17:00 | Blómagarðurinn: Pikknikk-tónleikar
Ísfirska tónlistarfólkið Kristín Sesselja og Gosi koma fram á stuttum pikknikk-tónleikum í Blómagarðinum á þjóðhátíðardaginn. Þar flytja þau sína eigin tónlist. Gestir eru hvattir til að mæta með stóla eða teppi og jafnvel nesti. Tónleikarnir eru hluti af þjóðhátíðarhöldum Ísafjarðarbæjar.
20:00 | Hamrar: Upphafstónleikar – flauta og píanó
Á opnunartónleikum hátíðarinnar koma fram Catherine Gregory flautuleikari og David Kaplan píanóleikari. Þau hafa leikið saman frá árinu 2014 og flétta gjarnan saman gömlu og nýju á tónleikum sínum. Á tónleikunum í Hömrum verður flautusónata Prókofíevs á dagskrá og einnig kaflar úr fiðlusónötu Césars Franck í umritun fyrir flautu og píanó. Á milli þessara verka hljóma svo Þrjú sólarlög eftir Jónas Tómasson frá árinu 1997 og verk eftir Gabrielu Lenu Frank sem var sérstaklega samið fyrir þau Catherine og David.
Sunnudagur, 18. júní
20:00 | Hamrar: Fiðla og mörg selló
Á þessum tónleikum stefna flytjendur saman verkum úr ýmsum áttum. Þeir hefjast á barokkverki eftir prestinn og tónskáldið Francesco Bonporti. Þaðan liggja þræðir yfir í verkið Shaked Graces eftir Elizu Brown þar sem hún tekur skreytinótur barokktónlistarinnar til rannsóknar og endurvinnslu. Á milli þessara verka hljómar svo strengjastúdía eftir Danann Simon Steen Andersen frá árinu 2007 en á síðari hluta tónleikana hverfum við eina öld aftur í tímann og heyrum sónötu Ravels fyrir fiðlu og selló, skemmtilegt verk og krefjandi í flutningi.
Mánudagur, 19. júní
12:15 | Bryggjusalur Edinborgarhúsi: Hádegistónleikar
Á þessum hádegistónleikum í Edinborgarhúsinu leikur David Kaplan tvö af öndvegisverkum píanóbókmenntanna, Fantasíu Mozarts í c-moll (K. 475) og Tunglskinssónötu Beethovens. Þriðja verkið á tónleikunum er Ballade eftir finnska tónskáldið Kaiju Saariaho sem lést fyrr í mánuðinum. Ballade er samið árið 2005, stutt en áhrifamikið verk þar sem tónskáldið lætur laglínu birtast út úr þéttum tónvefnaði og hverfa inn í hann aftur.
20:00 | Hamrar: Söngur og píanó
Á þessum tónleikum eru norræn sönglög í öndvegi. Hér hljóma þekkt lög eftir Jórunni Viðar, Jón Leifs, Edvard Grieg og Jean Sibelius en við fáum einnig að heyra lög eftir annan flytjandann, bandaríska tónskáldið og píanóleikarann Evan Fein, samin við íslensk ljóð, og alveg nýtt verk eftir Halldór Smárason, Fjallkonuljóð, sem er samið við samnefnt ljóð Lindu Vilhjálmsdóttur frá árinu 2018.
Þriðjudagur, 20. júní
12:15 | Bryggjusalur Edinborgarhúsi: Hádegistónleikar
Píanótríóin tvö sem eru á dagskrá þessara hádegistónleika eru einkar fallegar tónsmíðar og eiga það sameiginlegt að hafa verið gjafir til kvenna. Tríó Haydns er tileinkað vinkonu hans, Rebeccu Schroeter, sem hann kynntist í Lundúnaferðum sínum í lok 18. aldar og varð afar hrifinn af. Tríó Mendelssohns er samið hálfri öld síðar og tileinkað vini tónskáldsins, fiðluleikaranum Louis Spohr, en fært systur Mendelssohns, Fanny, í afmælisgjöf árið 1846.
20:00 | Hamrar: Oliver Rähni á píanó
Bolvíkingurinn ungi, Oliver Rähni, hefur þegar vakið mikla athygli fyrir píanóleik sinn og eigin tónsmíðar. Hann lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskóla Bolungarvíkur í fyrra og hefur í tvígang fengið viðurkenningu fyrir framúrskarandi píanóleik á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Á þessum tónleikum leikur hann krefjandi efnisskrá með verkum frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar og einnig eigin Hugleiðingu um stef eftir Sigvalda Kaldalóns.
Miðvikudagur, 21. júní – sumarsólstöður
12:15 | Bryggjusalur Edinborgarhúsi: Hádegistónleikar
Um sumarsólstöður 2020, í miðjum kórónaveirufaraldri, hélt Sæunn Þorsteinsdóttir vestur á firði og efndi til tónleika í sex kirkjum þar sem hún lék allar sellósvítur Bachs, eina svítu í hverri kirkju. Guðshúsin fylltust af tónleikaþyrstum gestum sem margir fylgdu Sæunni kirkju úr kirkju, úr firði í fjörð, þar til síðasta svítan hljómaði við ysta haf rétt í þann mund sem sólin sleikti hafflötinn. Í framhaldi af þessu sólstöðuævintýri hljóðritaði Sæunn svíturnar og þær koma nú út á hljómdiski undir merkjum bandarísku útgáfunnar Sono Luminus. Á þessum hádegistónleikum – sem ber einnig upp á sumarsólstöður – er útgáfunni fagnað og Sæunn leikur einn þátt úr hverri svítu.
20:00 | Hamrar: Lokahátíð – Decoda tríó
Á lokatónleikum hátíðarinnar leika þau David Kaplan, Catherine Gregory og Sæunn Þorsteinsdóttir spennandi efnisskrá. Bandaríska tónskáldið Ellis Ludwig-Leone sótti tónskáldasmiðju á Við Djúpið árið 2012, tók þá ástfóstri við Ísafjörð og hefur komið af og til síðan og unnið að verkefnum hér. Á tónleikunum heyrist eitt af hans nýjustu verkum og einnig hið óviðjafnanlega Vox Balaenae eftir George Crumb frá árinu 1971 sem innblásið er af söng hnúfubaksins. Upptaktinn á tónleikunum á svo Joseph Haydn með yndislegu tríói í D-dúr fyrir flautu, selló og píanó.
Miðasala
Miðaverði á hátíðina er stillt í hóf. Fast verð á kvöldtónleika er 3.000 kr. en ungt fólk og námsmenn (yngri er 25) fá miðann á 2.000. Hátíðarpassi sem gildir á alla kvöldtónleikana fimm kostar aðeins 7.500.
Gott aðgengi er að tónleikastöðinum, bæði í Hömrum og Bryggjusal Edinborgarhússins.
Miðasala fer fram á tónleikastað eða á netinu í aðdraganda tónleikanna.