Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið 2024 er tilbúin. Á henni er að finna fjölbreytta tónleika en þar ber hæst þátttaka þýsku kammersveitarinnar Orchester im Treppenhaus.
Vetrarferðin – eins og þú hefur aldrei heyrt hana fyrr
Vetrarferð Franz Schuberts er án efa hornsteinn í tónbókmenntunum og sjálfsagt frægasti söngvasveigur allra tíma. Inntak verksins – ljóðanna og tónlistarinnar –, flakk, löngun, missir og hið óþekkta varð Thomas Posth og Fynn Großmann innblástur til að skrifa nýa hljómsveitarútsetningu á verkinu fyrir þýsku kammersveitina Orchester im Treppenhaus.
Á tónleikum á sumarsólstöðum, 20. júní kl. 20, frumflutur kammersveitin undir stjórn Thomas Posth Vetrarferðina í þessari nýju útsetningu á Íslandi. Það kemur í hlut Herdísar Önnu Jónasdóttur, sópran, að tjá hlutverk förumannsins en þó er brugðið á það ráð að þeim hluta er lýsa ást förusveinsins með beinum hætti til konu er skipt út fyrir hljómsveitarparta eða þýðingu á önnur tungumál eins og arabísku og japönsku sem breyta sjónarhorni verksins lítið eitt. Útsetningin er fyrir 11 manna hljómsveit; strengi, bassaklarínett, rafmagnsgítar, harmoniku, sög og slagverk svo eitthvað sé nefnt.
Tónleikarnir eru styrktir af Goethe Institut.
Masterclass í kammartónlist
Sérstök áhersla er lögð á kammertónlistarnámskeið hátíðarinnar 2024 fyrir strengjaleikara, blásara og píanista í litlum hópum. Kennarar hátíðarinnar, sem koma meðal annars úr kammersveitinni Orchester im Treppenhaus frá Þýskalandi, leika með nemendum í kammerhópum.
Meðal kennaranna er Christine Köhler. Hún er fjölhæfur kennari og tónlistarkona og notar menntun sína sem flautuleikari ásamt menntun í talþjálfun við tónlistarkennslu. Samhliða því leggur hún mest stund á kammertónlist, ekki síst með Orchester im Treppenhaus.
Hún, ásamt Moritz Ter-Neddan, fiðlukeikara, leiðir fjögurra daga masterclass í kammertónlist á Við Djúpið ásamt því að bjóða flautunemendum á sérstakt flautunámskeið. Athygli er vakin á að nemendur þurfa ekki skrá sig til leiks í fyrirfram samsettum kammerhópum heldur er öllum nemendum skipað í hóp á námskeiðinu.
Við hlökkum til að halda áfram að kynna fyrir ykkur dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið á næstu vikum.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
Nýr lagalisti úr smiðju hátíðarinnar er kominn út á Spotify-tónlistarveitunni. Hann er tileinkaður jafndægri að vori og færir birtu að skrifborðinu eða í bílinn.