Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní, efst tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði. Á dagskrá þessa fyrsta dags hátíðarinnar eru tvennir tónleikar. Dagskráin rekur sig svo með fjölbreyttum tónleikum daglega fram á sumarsólstöður.
Miðasala
Að venju verður miðasala á hátíðina við innganginn í Hömrum og opnar 45 mínútum áður en tónleikar hefjast. Í ár er einnig hægt að kaupa miða á netinu sem og hátíðarpassa sem veitir aðgang að öllum kvöldtónleikum hátíðarinnar.
Halldór Smárason í Viðsjá, Rás 1
Ísfirðingurinn Halldór Smárason var gestur Víðsjár á Rás 1 á dögunum. Þar sagði hann frá kynnum sínum og reynslu af tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Halldór á verk á efnisskrá tónleikanna þann 19. júní kl. 20 í Hömrum.
Hádegistónleikar
Þrennir hádegistónleikar eru á dagskrá hátíðarinnar í ár. Þeir fara fram á mánudag, þriðjudag og miðvikudag (19., 20. og 21. júní) kl. 12:15 og standa ekki mikið lengur en 30 mínútur. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Dagskrá þeirra er fjölbreytt; fyrstu eru píanótónleikar, svo leikur píanótríó og loks eru sellótónleikar.
Edinborg Bistro er opið í hádeginu þá daga sem hádegistónleikar eru á dagskrá. Í boði er að kaupa sjávarréttasúpu og brauð á 1.950 kr. eða grænmetissúpu (vegan). Athugið að ekki er gert ráð fyrir að tónleikagestir matist á meðan á tónleikunum stendur.
Námskeið og nemendatónleikar
Einn af hornsteinum dagskrárinnar er öflugt námskeiðshald. Á því er ekki undantekning ár. Handhöfum hátíðarpassa gefst tækifæri á að hlusta á masterclass-námskeið hátíðarinnar. Dagskrá kennslunar er birt á heimasíðu hátíðarinnar.
Við sem stöndum að tónlistarhátíðinni Við Djúpið hlökkum til daganna framundan og til þess að taka á móti tónleikagestum.