Tónlistarhátíðin Við Djúpið efnir nú til tónleikaveislu á ný þegar sól er hæst á lofti á Ísafirði. Hátíðin, sem fyrst var haldin í júní fyrir réttum 20 árum hefur frá upphafi boðið upp á fjölbreytta tónleikadagskrá og sumarnámskeið fyrir lengra komna tónlistarnemendur.
Eftir nokkurra ára dvala er tónlistarhátíðin risin upp. Dagna 17.–21. júní verða yfir 10 tónleikar á dagskrá og miðaverði stillt í hóf.
Aðalkennarar hátíðarinnar í ár koma frá kærum samstarfsaðila vestan hafs, Decoda, en í gegnum árin hafa fjölmargir kammerhópar komið á Ísafjörð úr þeirra ranni. Í ár eru það Catherine Gregory og David Kaplan ásamt Sæunni Þorsteinsdóttur. Þau koma fram á samtals fernum tónleikum, ein síns liðs og hvert með öðru. Efnisskrá þeirra er reglulega fjölbreytt en þar á meðal má finna sellósvítur Bachs, Sólarlög Jónasar Tómassonar, verk eftir George Crumb og fyrrum nemanda hátíðarinnar Ellis Ludwig-Leone.
Að auki má nefna sellóleikarann Ragnar Jónsson, píanóleikarann Evan Fein og barítónsöngvarann Colin Levin sem koma fram á aðaltónleikaröð hátíðarinnar í Hömrum og flytja tónlist Evans, Brahms og glænýtt sönglag Ísfirðingsins Halldórs Smárasonar sem var einmitt tónsmíðanemandi Við Djúpið árið 2011.
Í fyrsta skipti í sögu hátíðarinnar er boðið upp á heila tónleika ísfirsks tónlistarnemanda og tónlistarmanns. Það er píanóleikarinn Oliver Rähni sem leikur tónlist Chopins, Rakhmanínofs og verk úr eigin smiðju.
Hádegistónleikar Við Djúpið snúa aftur; röð þriggja stuttra tónleika í Bryggjusal Edinborgarhússins þar sem gestum gefst tækifæri á að fá örlitla innsýn í líf tónlistarmannanna.
Það er von okkar sem að tónlistarhátíðinni Við Djúpið standa að hún falli vel í kram heimamanna og gesta.
Glæsileg námskeið fyrir tónlistarnemendur
Aðalnámskeið hátíðarinnar 2023 er kammertónlistarnámskeið fyrir strengjaleikara, blásara og píanista í litlum hópum sem munu spila með leiðbeinendum hátíðarinnar sem koma frá kammerhópnum Decoda í Bandaríkjunum. Einnig verður hægt að fá einkatíma og taka þátt í masterclass hjá kennurum hátíðarinnar.
Skráning stendur yfir fyrir hópa og einstaklinga þar sem öllum verður komið fyrir í samspilshópum. Að auki verður hægt að sæka einka- og hóptíma hjá kennurunum Námskeiðsgjöldum er stillt í hóf og hægt að sækja um heimagistingu.