Við höldum áfram að kynna dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið sem fram fer dagana 17.–22. júní í sumar. Í dag segjum við frá kammersveit sem kemur frá Hannover og masterclass í söng.
Frískandi hljómsveit frá Þýskalandi
Á hátíðinni í sumar ber án efa hæst koma þýsku kammersveitarinnar Ochester im Treppenhaus. Hljómsveitin hefur aðsetur í Hannover en hefur getið sér gott orð víða um Þýskaland og einnig utan heimalandsins.
Treppenhaus-hljómsveitin hefur einbeitt sér að því að flytja klassíska og nýja tónlist á frískandi hátt, oft í óhefðbundnum rýmum (eins og nafnið hefur til kynna: Treppenhaus er þýska yfir stigahús) en líka með nýrri nálgun.
Orchester im Treppenhaus kemur fram í allri sinni dýrð á tvennum tónleikum í dagskrá hátíðarinnar (20. og 22. júní) auk þess sem félagar úr hljómsveitinni koma fram í minni hópum á öðrum. Þá kenna nokkur þeirra á námskeiðum hátíðarinnar.
Herdís Anna kennir söng
Það er hátíðinni mikið ánægju efni að hin ísfirska söngkona Herdís Anna Jónasdóttir er ein af lykiltónlistarfólkinu við Djúpið í ár. Það er hálf ótrúlegt að þetta er í fyrsta sinn her Herdís kemur fram á tónlistarhátíðinni Við Djúpið.
Herdís hefur komið víða við síðan hún lauk námið við Tónlistarskóla Ísafjarðar í upphafi aldarinnar. Eftir nám í Listaháskóla Íslands hélt hún til Berlínar í framhaldsnám og hefur síðan starfað við óperuhús í Þýskalandi og Sviss auk Reykjavíkur og komið fram á fjölmörgum tónleikum til dæmis hér heima, í Evrópu en líka eins langt í burtu og hægt er að hugsa sér: í Ástralíu.
Herdís Anna nýtur liðsinnis píanóleikarans Alexanders Vorontsovs á námskeiðinu. Auk kennslunnar kemur Herdís fram á tvennum tónleikum hátíðarinnar (20. og 22. júní)
Við hlökkum til að halda áfram að kynna fyrir ykkur dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið á næstu vikum.
Kveðja,
tónlistarhátíðin Við Djúpið