MASTERCLASS OG NÁMSKEIÐ SUMARSINS
SUMMER COURSES AT THE VIÐ DJÚPIÐ
Rauður þráður í dagskrá tónlistarhátíðarinnar er námskeiðshald, oftast með masterclass-sniði. Á því verður engin breyting í ár og þessu bréfi kynnum við framboð námskeiða sumarsins:
MASTERCLASS: KAMMERTÓNLIST
MASTERCLASS: SÖNGUR Á LEIKSVIÐI
VINNUSTOFA FYRIR SÖNGVASKÁLD
TÓNLISTARLEIKJANÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN
KAMMERTÓNLIST: MASTERCLASS
Aðalnámskeið hátiðarinnar hefur undanfarin ár verið kammertónlistarnámskeið fyrir strengjaleikara, blásara, píanista og söngvara í litlum hópum. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að öllum nemendum er komið fyrir í litlum kammerhópi ásamt öðrum nemenda og einum leiðbeinanda sem kemur úr NOVO kvartettinum frá Danmörku eða einum Frach-bræðranna.




Hópnum er valið verkefni við hæfi og fer kennslan bæði fram í hóptímum og æfingaherbergi viðkomandi kammerhóps.
Kennsla fer fram í Tónlistarskóla Ísafjarðar en þar er öll aðstaða til fyrirmyndar til kennslu. Hóptímar og lokatónleikar fara fram í Hömrum, glæsilegum tónleikasal.
Kennt er dagana 17., 18., 19. og 20. júní. Nemendatónleikar eru að morgni 21. júní. Nemendur mæta fyrst til leiks kl. 12 þann 17. júní. Þátttökugjald í námskeiðinu er 45.000 kr. Hátíðarpassi er innifalinn.



Kammernámskeið hátíðarinnar er einstakt í sinni röð á Íslandi og er frábært tækifæri fyrir unga hljóðfæraleikara að leika með sér eldra og reyndara tónlistarfólki.
MASTERCLASS: SÖNGUR Á LEIKSVIÐI
Í ár er boðið upp á nýung á tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Það er námskeið með Masterclass-sniði fyrir söngnema og söngvara sem vilja styrkja sig á leiksviði og fólk með brennandi áhuga á söngleikjalist.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Litla leikklúbbinn á Ísafirði og fram fer í Edinborgarhúsi.
Kennt verður 17., 18., 19. og 20. júní en lokatónleikar námskeiðsins fara fram 21. júní. Allir þátttakendur frá einkatíma með kennara og tækifæri til að koma fram á tónleikum. Nemendur mæta fyrst á hádegi 17. júní. Þátttökugjald í námskeiðinu er 45.000 kr. Hátíðarpassi er innifalinn.


Þórunn Arna hefur allt frá því hún útskrifaðist úr leikaranámi verið áberandi á leiksviðum landsins, lengst af í Borgarleikhúsinu. Hún nam söng, fiðlu- og píanóleik í Tónlistarskóla Ísafjarðar, kom fram með leikfélögum bæjarins, meðal annars í hlutverki Ólívers Twists í uppfærslu LL og TÍ og síðar sem eitt von Trapp-barnanna í uppfærslu sömu aðila á Söngvaseiði. Þórunn nam einnig söng við LHÍ.
Pétur Ernir var einnig áberandi í Tónlistarskóla Ísafjarðar þar sem hann lærði á píanó, saxófón og söng. Hann kom fram í leiksýningum í bænum, meðal annars í burðarhlutverkum uppsetninga Leikfélags MÍ og meðfram námi var hann meðleikari með kórum á svæðinu. Eftir framhaldspróf í TÍ lagði hann stund á tónlistarnám í LHÍ og síðar framhaldsnám í söngleikjalist við Royal Academy of Music í Lundúnum.
Pétur má sjá á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu um þessar mundir þar sem hann leikur í uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á söngleiknum Moulin Rouge! og Galdrakarlinum í Oz í hlutverki ljónsins en leikstjóri er einmitt Þórunn Arna Kristjánsdóttir
VINNUSTOFA FYRIR SÖNGVASKÁLD
Annað árið í röð er efnt til metnaðarfulltrar vinnustofu fyrir söngvaskáld. Á námskeiðinu fá þátttakendur einstakt tækifæri til að vinna með reyndum og virtum lagahöfundum frá Norður-Ameríku og Írlandi í nokkra daga á Ísafirði. Námskeiðið samanstendur af leiðsögn og masterclass-námskeiðum með tónlistamönnum, vinnusmiðjum með öðrum þátttakendum og tónleikum þar sem öllum býðst að flytja eigin verk.



Námskeiðið fer fram dagana 17.–21. júní. Kennt er í Tónlistarskóla Ísafjarðar og er framleitt af Westfjörds Songwriting Workshop í samvinnu við hátíðina.
TÓNLISTARNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN
Líkt og undanfarin ár er boðið upp á násmkeið í tónlist fyrir börn á grunnskólaaldri í tengslum við hátíðina. Fyrirkomulag námskeiðsins verður með örlítið breyttu sniði í ár og verður kynnt fljótlega. Hægt er að fylgjast með á vef hátíðarinnar.
Hér má skoða síðustu þrjú bréf þar sem við höfum kynnt þá listamenn sem bera hæst í dagskrá sumarsins en margir þeirra leiða einmitt námskeiðshaldið.
Lesa: Í nýlendunni sumarið 2026 – Um NOVO kvartettinn
Lesa: Leikhústónlist frá Ísafirði – Um Þórunni og Pétur
Lesa: Bræðurnir Frach – Um pólsku bræðurna frá Ísafirði
SUMMER COURSES 2026
A through-line in the program of the festival is its courses and workshops, most often offered in a masterclass format. This remains an important part of the festival this year, and in this newsletter we introduce the courses on offer this summer:
MASTERCLASS: CHAMBER MUSIC
MASTERCLASS: SINGING ON THE THEATRE STAGE
SONGWRITING WORKSHOP
MUSIC WORKSHOP FOR CHILDREN
CHAMBER MUSIC MASTERCLASS
In recent years, the festival’s main course offering has been a chamber music masterclass for string players, wind players, pianists, and singers working in small ensembles. Each participant is placed in a chamber group together with other students and one instructor, drawn either from the Danish NOVO Quartet or from the Frach brothers.
Each group is assigned repertoire suited to its instrumentation and level, and teaching takes place both in group sessions and in individual rehearsal rooms for each ensemble.
Instruction takes place at the Ísafjörður Music School, which offers excellent facilities for teaching and rehearsals. Group sessions and the final concert are held in Hamrar, the town’s beautiful concert hall.
Teaching takes place on June 17, 18, 19, and 20. The student concert will be held on the morning of June 21. Participants are expected to arrive for the first session at 12:00 on June 17.
The participation fee is ISK 45,000, and a festival pass is included.
The festival’s chamber music course is unique in Iceland and offers young musicians a valuable opportunity to perform alongside more experienced artists.
MASTERCLASS: SINGING ON THE THEATRE STAGE
This year Við Djúpið introduces a new addition to the festival program: a masterclass for voice students and singers who wish to strengthen their stage presence, as well as anyone with a strong interest in musical theatre.
The course is presented in collaboration with Litli leikklúbburinn in Ísafjörður and takes place at Edinborgarhúsið.
Teaching will take place on June 17, 18, 19, and 20, with the final concert on June 21. All participants receive individual coaching sessions with the instructors and the opportunity to perform in the final concert. The first session begins at 12:00 on June 17. The participation fee is ISK 45,000, and a festival pass is included.
Þórunn Arna Kristjánsdóttir has been a prominent presence on Icelandic stages since graduating as an actor, most notably at the Reykjavík City Theatre. She began her musical training at the Ísafjörður Music School, studying singing, violin, and piano, and performed early on with local theatre groups. She later studied singing at the Iceland University of the Arts.
Pétur Ernir Svavarsson studied piano, saxophone, and voice at the Ísafjörður Music School and was active in local theatre productions from an early age. He later continued his studies at the Iceland University of the Arts and completed advanced training in musical theatre at the Royal Academy of Music in London. He currently performs on the main stage of the Reykjavík City Theatre in Moulin Rouge! and The Wizard of Oz.
SONGWRITING WORKSHOP
For the second year in a row, Við Djúpið presents an ambitious workshop for songwriters. The course offers participants a unique opportunity to work with experienced and acclaimed songwriters from North America and Ireland over several days in Ísafjörður.
The program includes guided sessions and masterclasses with the instructors, collaborative workshops with fellow participants, and concerts where participants have the opportunity to perform their own music.
The workshop takes place June 17–21 at the Ísafjörður Music School and is produced by the Westfjords Songwriting Workshop in collaboration with the festival.
As in previous years, the festival will offer a music workshop for children of primary school age in connection with the festival. This year the format of the course will be slightly revised, and further details will be announced soon.
Updates will be published on the festival website.
Below you can revisit the previous three newsletters introducing the artists featured prominently in this summer’s program — many of whom will also serve as instructors in the festival’s courses and workshops.
Read: In the Settlement – Summer 2026 – About the NOVO Quartet
Read: Tunes From the Stage – Theater Music from Ísafjörður – About Þórunn and Pétur
Read: The Frach-brothers – about the Polish–Icelandic brothers
The festival theme In the Settlement refers to Ísafjörður as a community shaped over centuries by people and culture—by what has grown from within the fjord itself, but also by what has arrived across the sea with successive waves of inhabitants.








