DAGSKRÁ HÁTÍÐARINNAR – Í NÝLENDUNNI
THE FULL PROGRAM OF VIÐ DJÚPIÐ 2026 – IN THE SETTLEMENT
Við kynnum með stolti tónleikadagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið 2026. Hátíðin spannar fimm daga, býður upp á vel á annan tug tónleika og spennandi hliðardagskrá sem er kynnt síðar.
Sala hátíðarpassa stendur yfir. Tvennskonar passar eru í boði; almennur og passi sem inniheldur einnig Sumarjazz Jómfrúarinnar.
MIÐVIKUDAGUR, 17. JÚNÍ – LÝÐVELDISDAGURINN
Líkt og undanfarin ár er blásið í hátíðarlúðra á Ísafirði þegar þjóðin fagnar lýðveldisafmælinu. Útitónleikar hátíðarinnar í Blómagarðinum á þjóðhátíðardaginn hafa fest sig í sessi og opnunartónleikar í Hömrum um kvöldið bjóða upp á glæsilega kvöldstund.
Blómagarðurinn á Austurvelli kl. 17.
Hátíðin hefst á pikknikktónleikum á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en þeir eru í sérstakri samvinnu við Ísafjarðarbæ og 17. júní-hátíðarhöldin. Fram koma Vistarbandið skipað tónlistarfólki frá Ísafirði og sönvarinn Ágúst Þór Brynjarsson. Tónleikagestir eru hvattir til að taka með sér teppi að sitja á og jafnvel smá nesti.
Hamrar, kl. 20.
Á opnunarhátíð tónlistarhátíðarinnar koma fram meðlimir danska NOVO kvartettsins ásamt ísfirsk-pólsku bræðrunum Frach auk Sæunnar Þorsteinsdóttur og Herdísar Önnu Jónasdóttur. Á efnisskránni er glæsileg kammertónlist úr ýmsum áttum. Hátíðlegir tónleikar sem hvoru tveggja henta sem lokapunktur 17. júní hátíðarhalda og upptaktur tónlistarhátíðarinnar.
FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ – FRÁ ÍSAFIRÐI
Annar dagur hátíðarinnar er tileinkaður Ísafirði, ísfirsku tónlistarfólki og tónlist úr bænum. Á hádegistónleikum hljómar nýr ísfirskur ljóðaflokkur og um kvöldið er leikhústónlistarveisla.
Edinborgarhúsið, kl. 12:15
Á fyrri hádegistónleikum sumarsins mætir ísfirska tónskáldið Halldór Smárason til leiks með nýjan ljóðaflokk sem hann hefur samið upp úr tölvupóstsamskiptum hans og móður hans, Helgu Friðriksdóttur. Halldór verður sjálfur við píanóið en honum til halds og traust við Ísafjarðarfrumflutninginn á Lítið að frétta verður Herdís Anna Jónasdóttir, sópran.
Hamrar, kl. 20.
Það verður sungið, grátið og kysst á leikhústónleikum í Hömrum þar sem Ísfirðingarnir, leikararnir og söngvararnir Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Pétur Ernir Svavarsson koma fram og flytja lög fyrir leiksvið eftir tónskáld úr Djúpinu; Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, Braga Valdimar Skúlason og Sigvalda Kaldalóns.
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ – FRÁ PÓLLANDI
Dagurinn er tileinkaður Póllandi, tónlist þaðan og flytjendum. Tveir eftirsóttir tónlistarmenn flytja snarpa og spennandi efnisskrá í hádeginu og um kvöldið bjóða bræðurnir Frach til veislu. Síðar um kvöldið er skipt um kúrs og þá stíga á stokk söngvaskáld frá Írlandi og Bandaríkjunum.
Edinborg, kl. 12:15
Pólski fiðluleikarinn Piotr Tarcholik sem er konsertmeistari pólsku útvarpshljómsveitarinnar flytur ásamt landa sínum Bartosz Koziak, sellóleikara, tónlist frá heimalandi þeirra á glæsilegum hádegistónleikum.
Hamrar, kl. 20.
Bræðurnir Maksymilian Haraldur. Mikołaj Ólafur og Nikodem Julius Frach snúa heim til Ísafjarðar frá Póllandi og koma fram í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Í farteskinu er tónlist sem hefur fylgt þeim; m.a. píanókvintett Jóns Ásgeirssonar og annar eftir Shostakovítsj. Með þeim leika Piotr Tarcholik og Bartosz Koziak.
Edinborg, kl. 22:15
Bandaríska hljómsveitin San Fermin leikur í fyrsta sinn á Ísafirði en einn meðlimur hennar, tónskáldið Ellis Ludwig-Leone hefur oftsinnis heimsótt bæinn. Á tónleikunum stíga einnig á stokk írsku söngvaskáldin SOAK og Sorcha Richardsson.
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ – DANSKUR DAGUR
Þegar hér er komið við sögu fer hátíðin að styttast í annan endann og dagskráin að ná hápunkti. Það er danskur dagur sem hefst með smørrebrød og sumarjazzi og um kvöldið mætir margverðlaunaður ungur strengjakvartett frá Kaupmannahöfn með danska efnisskrá.
Logn við Silfurtorg, kl. 13
Smurbrauðsveitingahúsið Jómfrúin hefur um árabil staðið fyrir sumarjazztónleikaröð á torginu fyrir aftan veitingastaðinn við Lækjargötu í Reykjavík. Jómfrúin mætti vestur á Við Djúpið í fyrra og sló rækilega í gegn. Við endurtökum því leikinn og bjóðum uppá smurbrauð, remúlaði og jazz en innifalið í miðanum er smurbrauð af seðli og tónleikar. Tríó Freysteins Gíslasonar leikur.
Hamrar kl. 20.
Þrátt fyrir nokkuð ungan aldur hljóðfæraleikaranna sem skipa NOVO kvartettinn danska hefur hann getið sér reglulega gott orð sem framúrskarandi strengjakvartett. Dönskum degi líkur á tónleikum þeirra þar sem þau bera m.a. á borð tvo ólíka kvartetta eftir tvö ólík dönsk tónskáld.
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ – SUMARSÓLSTÖÐUR
Lokadagur hátíðarinnar hefst snemma og er þéttur. Hann hefst með röð nemenda- og uppskerutónleika sumarnámskeiða hátíðarinnar og tónleikadagskránni lýkur með tónlistarveislu í Hömrum kl. 17.
Hamrar, kl. 17.
Það er blásið til veislu á lokahátíð Við Djúpið. Fram koma listamenn hátíðarinnar í fjölbreyttri dagskrá sem spannar breytt bil tónlistarögunnar sem nær hámarki í vinsælum og glæsilegum strengjaoktett eftir Mendelssohn.
Hér er svo hægt að kaupa hátíðarpassana:
Við hlökkum til að sjá ykkur öll,
tónlistarhátíðin Við Djúpið
THE FESTIVAL PROGRAM
Við Djúpið Music Festival June 17th–21st 2025.
We are proud to present the concert program for the 2026 Við Djúpið Music Festival. The festival spans five days, featuring well over a dozen concerts, along with an exciting side program to be announced later.
Festival passes are now on sale. Two types of passes are available: a standard pass and a pass that also includes the Jómfrúin Summer Jazz event.
FESTIVAL PACKAGES
Did you already take a look at out outstanding and exclusive festival packages offering a unique way to visit both the festival but also the Westfjords?
WEDNESDAY, JUNE 17 – THE NATIONAL DAY
As in previous years, the festival opens as the nation celebrates Iceland’s National Day. The outdoor concert in the town park has become a tradition, followed by a festive opening concert in Hamrar in the evening.
Austurvöllur (town park) at 17:00
The festival begins with a picnic concert on Iceland’s National Day. Admission is free, presented in collaboration with the town of Ísafjörður and the official June 17 celebrations. Guests are encouraged to bring a blanket to sit on and perhaps a small picnic.
Hamrar at 20:00
The opening concert features members of the Danish NOVO Quartet alongside the Ísafjörður–Polish Frach brothers. The program presents a rich selection of chamber music from various traditions. A celebratory concert that works both as a closing moment of National Day festivities and the opening of the festival.
THURSDAY, JUNE 18 – FROM ÍSAFJÖRÐUR
The second day is dedicated to Ísafjörður, its musicians, and music connected to the town. A new song cycle premieres at the lunchtime concert, followed by an evening of theatre music.
Edinborgarhúsið at 12:15
At the first of two lunchtime concert of the summer, composer Halldór Smárason presents a new song cycle based on email correspondence between himself and his mother, Helga Friðriksdóttir. Smárason plays the piano, joined by soprano Herdís Anna Jónasdóttir for the Ísafjörður premiere of Little to Report (Ekkert að frétta).
Hamrar at 20:00
An evening of theatre music featuring locally grown stars Þórunn Arna Kristjánsdóttir and Pétur Ernir Svavarsson. They present songs written for the stage by composers from Ísafjörður and the Djúpið: Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, Bragi Valdimar Skúlason, and Sigvaldi Kaldalóns.
FRIDAY, JUNE 19 – FROM POLAND
This day is dedicated to Poland, its music, and artists. At lunchtime, two outstanding musicians present a dynamic program, followed by an evening concert with the Frach brothers. Later in the evening, the focus shifts to singer-songwriters from Ireland and the United States.
Edinborg at 12:15
Polish violinist Piotr Tarcholik, concertmaster of the Polish National Radio Symphony Orchestra, performs with cellist Bartosz Koziak in a lunchtime concert featuring music from their homeland.
Hamrar at 20:00
The Frach brothers — Maksymilian Haraldur, Mikołaj Ólafur, and Nikodem Julius — return home to Ísafjörður from Poland and perform at Við Djúpið for the first time. Their program includes music closely connected to them, including piano quintets by Jón Ásgeirsson and Shostakovitch. They are joined by Piotr Tarcholik and Bartosz Koziak.
At the bar at 22:15
The American band San Fermin performs in Ísafjörður for the first time. The concert also features Irish singer-songwriters SOAK and Sorcha Richardson.
SATURDAY, JUNE 20 – FROM DENMARK
As the festival approaches its peak, the program turns to Denmark. The day begins with smørrebrød and summer jazz, and concludes with an evening concert by an acclaimed young string quartet from Copenhagen.
Logn at Silfurtorg at 13:00
The Reykjavík restaurant Jómfrúin has for years hosted a popular summer jazz series in the capital. After a successful visit to Við Djúpið last year, they return with smørrebrød, remoulade, and live jazz. The ticket includes both smørrebrød from the menu and the concert.
Hamrar at 20:00
Despite the young age of its members, the Danish NOVO Quartet has established a strong reputation as an outstanding ensemble. Their concert brings the Danish Day to a close with two contrasting string quartets by Danish composers.
SUNDAY, JUNE 21 – SUMMER SOLSTICE
The final day of the festival begins early and is full of events. It opens with a series of student performances and concludes with a festive final concert in Hamrar at 5pm.
Hamrar at 17:00
The festival concludes with a celebratory concert featuring the festival artists in a varied program spanning a wide range of musical history, culminating in Mendelssohn’s brilliant and much-loved String Octet.
Festival passes can be purchased here:
Looking forward to seeing you,
Við Djúpið Music Festival











